Vörulýsing
Silfursmíði II er lengri útgáfa fyrir byrjendur og þá sem vilja ná góðum tökum á silfursmíðinni en einnig mjög gott fyrir þá sem hafa þegar unnið eitthvað með silfur og vilja læra grunninn betur. Hans gullsmiður leggur mikið uppúr því að þátttakendur nái tökum á grunntækni silfursmíði og gefi sér tíma til að læra tæknina. Þannig eigi þeir möguleika á að byggja ofan á það og haldið áfram að smíða sjálfir. Áhugi, þolinmæði og tími er það sem þarf og með þessu lengra námskeiði er kostur á að nema tæknina af mjög flinkum gullsmiði með mikla reynslu í faginu. Allt efni er innilafið í námskeiðsgjaldi, silfrið líka. p>
Tími: kl. 18-21
Dagsetningar: 15., 16. og 18. september.
Námskeið Handverkshússins eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga. Þátttakendur fá viðurkenningarskjal fyrir þátttöku sína og skráðar kennslustundir.