Við endurvekjum tálgudag fjölskyldunnar sem sló í gegn árið fyrir covid skemmtilegheitin : ) Ólafur Oddsson tálgumeistarinn okkar hafði veg og vanda að þeim degi en hann lést í upphafi þessa árs eftir stutta baráttu við veikindi. Í minningu Óla okkar viljum við halda tálguninni og allri grænni hringrásarhugsun á lofti með þessum degi og heiðra minningu Óla okkar.
Þetta verður bara skemmtilegur skapandi dagur hér á lóðinni okkar og okkar handverksmenn sýna handbragðið. Börnin geta tekið þátt í örnámskeiði og fengið leiðsögn um tálguaðferðir og fengið að prófa tálgunina.
Pylsur á grillinu og börnin fá litla tálgugjöf sem hvatningu til að leika sér líka í skjálausum leik.
Tiolboð á tálgusettum og hnífum þennan dag og vikuna á undan.